Bæjarstjórn Mosfellsbæjar

Bæj­ar­stjórn fer með stjórn bæj­ar­ins sam­kvæmt ákvæð­um sveit­ar­stjórn­ar­laga.

Í bæj­ar­stjórn Mos­fells­bæj­ar sitja bæj­ar­full­trú­ar sem sækja um­boð sitt til kjós­enda á fjög­urra ára fresti. Með meiri­hluta í bæj­ar­stjórn Mos­fells­bæj­ar kjör­tíma­bil­ið 2022-2026 fara full­trú­ar Framsóknarflokks (B), Samfylkingar (S) og Viðreisnar (C).

Bæjarstjórn skipa þau:
Örvar Jóhannsson (B), forseti bæjarstjórar
Anna Sigríður Guðnadóttir (S), 1. varaforseti

Dagný Kristinsdóttir (L), 2. varaforseti

Halla Karen Kristjánsdóttir (B)

Ásgeir Sveinsson (D)

Aldís Stefánsdóttir (B)

Jana Katrín Knútsdóttir (D)

Sævar Birgisson (B)

Rúnar Bragi Guðlaugsson (D)

Lovísa Jónsdóttir (C)

Helga Jóhannesdóttir (D)
Hrafnhildur Gísladóttir (B) tók sæti í bæjarstjórn á tímabilinu 15. október til 31. janúar á meðan Aldís Stefánsdóttir var í leyfi. 

Bæjarráð fer með framkvæmdastjórn sveitarfélagsins í umboði bæjarstjórnar. 
Halla Karen Kristjánsdóttir er formaður bæjarráðs.


Bæj­ar­stjóri Mos­fells­bæj­ar var Regína Ás­valds­dótt­ir
Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri

Ávarp bæjarstjóra

Ársskýrsla Mosfellsbæjar fyrir árið 2025 er lögð fram samhliða síðari umræðu um ársreikning Mosfellsbæjar.
Við höfum lagt mikla áherslu á að upplýsingar séu aðgengilegar fyrir kjörna fulltrúa og bæjarbúa og vel settar fram þannig að það sé auðvelt að glöggva sig á helstu lykiltölum.

Rekstrarniðurstaða A og B hluta Mosfellsbæjar er jákvæð um 514 milljónir. „Þessi niðurstaða endurspeglar traustan og ábyrgan rekstur, þrátt fyrir verðbólgu og hátt vaxtastig. Við höfum náð þessum árangri á sama tíma og við höfum ráðist í umfangsmiklar framkvæmdir og farið í metnaðarfull umbótaverkefni eins og Börnin okkar.“

Árið 2025 var afar viðburðaríkt í Mosfellsbæ og einkenndist af mikilli grósku í menningar-, íþrótta- og félagslífi. Samstarf Mosfellsbæjar við íþrótta- og tómstundafélög var eflt með formlegum samningum og stofnun samráðsvettvangs, þar sem lögð var áhersla á aukið aðgengi fyrir öll börn, þ.m.t. þau með sérþarfir. Ný íþróttastarfsemi bættist við, svo sem rafíþróttir, skák, borðtennis og parkour, auk þess sem þátttaka í fjölbreyttu starfi hélt áfram að aukast.

Stjórnendateymið

Regína Ásvaldsdóttir

Bæjarstjóri

Regína hefur verið bæjarstjóri frá 2022.

 

Kristján Þór Magnússon

Sviðsstjóri mannauðs- og starfsumhverfis

Kristján hefur starfað hjá Mosfellsbæ frá 2023.

Pétur Lockton

Sviðsstjóri fjármála- og áhættustýringarsviðs

Pétur hefur starfað hjá Mosfellsbæ frá 1998.

Arnar Jónsson

Sviðsstjóri menningar-, íþrótta og lýðheilsusviðs

Arnar hefur starfað hjá Mosfellsbæ frá 2017.

Ólafía Dögg Ásgeirsdóttir

Skrifstofustjóri umbóta og þróunar

Ólafía hefur starfað hjá Mosfellsbæ frá 2023.

Sigurbjörg Fjölnisdóttir

Sviðsstjóri velferðarsviðs

Sigurbjörg starfaði hjá Mosfellsbæ frá 2019.

 

Lét af störfum í desember 2025.

Jóhanna Hansen

Sviðsstjóri umhverfissviðs

Jóhanna hefur starfað hjá Mosfellsbæ frá 2006.

Ólöf Kristín Sívertsen

Sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs

Ólöf hefur starfað hjá Mosfellsbæ frá 2024.

Þóra Margrét Hjaltested

Bæjarlögmaður

Þóra hefur verið bæjarlögmaður frá 2020.

Mosfellsbær í hnotskurn

Bakland starfseminnar

Miðlæg stjórnsýsla í Mosó

Miðlæg stjórnsýsla nær til fjármála- og áhættustýringar, mannauðs- og starfsumhverfis, umbóta og þróunar, auk skrifstofu bæjarlögmanns.

Að læra og leika náttúrulega

Fræðsla og frístund í Mosó

Lögð er áhersla á að tryggja ör­yggi, vellíð­an og vöxt allra í skóla- og frí­stund­astarfi. Hér eru fimm grunnskólar, átta leikskólar, þar af tveir samreknir leik- og grunnskólar, fimm frístundir í skólum, Félagsmiðstöðin Bólið, listaskóli, vinnuskóli, stoðþjónusta í skólum auk skóla- og ráðgjafaþjónustu.

Velferð og náttúruleg lífsgæði

Þjónusta í traustu samfélagi

Veitt er þjónusta fyrir fatlað fólk, eldra fólk, flóttafólk, ásamt félagslegu húsnæði, barnavernd auk fjölbreyttrar félagsþjónustu.

Náttúrulega skapandi og hraust

Menning, íþróttir og lýðheilsa í Mosó

Mikil gróska er í menningu og íþróttum þar sem áhersla er á þátttöku í náttúrulegu og virku samfélagi. Í boði eru sundlaugar, íþróttamannvirki, félagsheimilið Hlégarður, bókasafn, listasalur auk tækifæra til útivistar í náttúrunni.

Náttúrulegt útlit

Skipulag, byggingar og umhverfismál í Mosó

Fjölbreytt þjónusta sem tryggir innviði bæjarins og stuðlar að náttúrulegu umhverfi. Umsjón er með skipulags- og byggingarmálum, rusl- og sorphirðu, garðyrkju, götulýsingum, snjóhreinsun, umhirðu gatna og göngustíga auk reksturs Eignasjóðs og MosVeitna.

Framkvæmdir 2025

Á árinu var unnið að fjölbreyttum verkefnum sem miðuðu að uppbyggingu, viðhaldi og endurnýjun mannvirkja og innviða í Mosfellsbæ. Áhersla var lögð á að bæta aðgengi, öryggi og þjónustu við íbúa, samhliða eflingu umhverfismála og sjálfbærra lausna.

Framkvæmdir náðu til skóla, leikskóla, íþróttamannvirkja, leik- og útivistarsvæða, sem og samgöngu- og veitukerfa og endurspegla áframhaldandi uppbyggingu og bætt lífsgæði í Mosó.

Í þessari samantekt má sjá ítarlega sundurliðun á helstu framkvæmdum ársins 2025.

Lykiltölur ársins

,2

skuldaviðmið

m.kr

rekstrartekjur ársins

m.kr

rekstrargjöld ársins

m.kr

fjármagnsliðir ársins

m.kr

veltufé frá rekstri

m.kr

heildarfjárfestingar ársins

m.kr

rekstrarafgangur ársins 2025

Íbúaþróun

íbúafjöldi Mosfellsbæjar 1. janúar 2025

%

íbúa eru karlkyns

%

íbúa eru kvenkyns

%

íbúa eru með erlent ríkisfang

stöðugildi hjá Mosfellsbæ

leikskólar

grunnskólar

íþróttagreinar er hægt að æfa í Mosfellsbæ

sundlaugar eru í bænum og er Lágafellslaug næst mest sótta sundlaug landsins

fell umlykja bæinn og eru með góðum gönguleiðum

Helstu fréttir ársins 2025

Skrifstofur
Þverholti 2
270 Mosfellsbær
kt. 470269-5969
rnr. 549-26-2200

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-13:00