Ávarp bæjarstjóra

Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri 1. september - 1. apríl 2026 

Ársskýrsla Mosfellsbæjar fyrir árið 2025 er lögð fram samhliða síðari umræðu um ársreikning Mosfellsbæjar.
Við höfum lagt mikla áherslu á að upplýsingar séu aðgengilegar fyrir kjörna fulltrúa og bæjarbúa og vel settar fram þannig að það sé auðvelt að glöggva sig á helstu lykiltölum.

Rekstrarniðurstaða A og B hluta Mosfellsbæjar er jákvæð um 514 milljónir. „Þessi niðurstaða endurspeglar traustan og ábyrgan rekstur, þrátt fyrir verðbólgu og hátt vaxtastig. Við höfum náð þessum árangri á sama tíma og við höfum ráðist í umfangsmiklar framkvæmdir og farið í metnaðarfull umbótaverkefni eins og Börnin okkar.“

Árið 2025 var afar viðburðaríkt í Mosfellsbæ og einkenndist af mikilli grósku í menningar-, íþrótta- og félagslífi. Samstarf Mosfellsbæjar við íþrótta- og tómstundafélög var eflt með formlegum samningum og stofnun samráðsvettvangs, þar sem lögð var áhersla á aukið aðgengi fyrir öll börn, þ.m.t. þau með sérþarfir. Ný íþróttastarfsemi bættist við, svo sem rafíþróttir, skák, borðtennis og parkour, auk þess sem þátttaka í fjölbreyttu starfi hélt áfram að aukast.

Áhersla á velferð, forvarnir og snemmtæka íhlutun var áberandi á árinu. Verkefnið Börnin okkar var innleitt með fjölmörgum aðgerðum sem miða að því að styrkja þjónustu við börn og fjölskyldur, auka aðgengi og stytta boðleiðir. Sálfræðiþjónusta var aukin, foreldrar fengu bættan aðgang að ráðgjöf og samstarf við Bergið Headspace með gjaldfrjálsum opnum viðtalstímum fyrir ungt fólk vikulega í Brúarlandi. Þá var unnið markvisst að því að efla félagsfærni og vellíðan barna og ungmenna.
Þjónusta við eldri borgara var jafnframt styrkt með innleiðingu samþættrar heimahjúkrunar og heimaþjónustu undir formerkinu Gott að eldast, fjölgun dagdvalarrýma og öflugu félagsstarfi í Brúarlandi, sem hefur stuðlað að aukinni þátttöku og bættri líðan.

Á árinu var ráðist í umfangsmiklar framkvæmdir og fjárfestingar í innviðum. Nýr leikskóli, Sumarhús, í Helgafellshverfi tók til starfa, uppbygging íþróttamannvirkja hélt áfram, meðal annars við Varmá, og ráðist var í viðamiklar endurbætur á skólum og leikskólum með áherslu á bætta aðstöðu og loftgæði. Nýtt íþróttahús var tekið í notkun við Helgafellsskóla og ný leiksvæði, þar á meðal leikvöllur með sérstöku aðgengi fyrir fötluð börn, og áfram var unnið að umhverfisverkefnum á borð við LED-lýsingu og bættar grenndarstöðvar.

Framþróun í skipulags- og atvinnumálum var einnig áberandi. Vinna við skipulag Blikastaðalands var á lokastigi og uppbygging athafnasvæðisins við Korputún hélt áfram. Þá var lögð áhersla á að efla Álafosskvos sem menningar- og áfangastað með gerð viljayfirlýsingar um sýningu um sögu ullariðnaðarins og áframhaldandi þróun þjónustu og aðstöðu á svæðinu.

Heildarmarkmið verkefna ársins var að efla lífsgæði íbúa, styrkja þjónustu og halda áfram að byggja upp öflugt, fjölbreytt og aðlaðandi samfélag í Mosfellsbæ.

Skrifstofur
Þverholti 2
270 Mosfellsbær
kt. 470269-5969
rnr. 549-26-2200

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-13:00