Vinna hófst í kjallara með steypu á nýrri botnplötu.
Ný vörumóttaka fyrir eldhús var tekin í notkun.
Endurnýjun skólalóðar hélt áfram, meðal annars með uppsetningu klifurtækja og róla.
Íþróttamiðstöðin Varmá
Tveir nýir klefar voru útbúnir.
Vinna við hússstjórnunarkerfi hélt áfram.
Hönnun á félagsaðstöðu lauk og uppbygging hófst.
Knattspyrnuvöllurinn við Varmá
Varmárvöllur var endurnýjaður og lagður með gervigrasi.
LED-lýsing var sett upp sem uppfyllir kröfur fyrir keppni í efstu deildum og sjónvarpsútsendingar.
Unnið var að standsetningu frjálsíþróttaaðstöðu við völlinn, með áætlaða verklok vorið 2026.
Lágafellsskóli
Innréttingar í heimilisfræðistofu voru endurnýjaðar.
Hafist var handa við LED-væðingu.
Fyrsti áfangi skólalóðar hófst.
Íþróttamiðstöðin Lágafelli
Loftapanell var endurnýjaður í klefum.
Hönnun á heitum potti hófst.
Lágafellslaug
Ný rennibraut var keypt og verður sett upp árið 2026.
Hreinsikerfi var sett upp við kaldapottinn.
Kvíslarskóli
Salerni kennara á 2. hæð voru endurnýjuð.
Innleiðingu LED-lýsingar var að mestu lokið.
Helgafellskóli
Framkvæmdir við nýtt íþróttahús stóðu yfir á árinu og stefnt er að lóðafrágangi árið 2026.
Leikskólinn Sumarhús
Leikskólinn Sumarhús í Helgafellshverfi, sem rúmar 150 börn, var tekinn í notkun árið 2025.
Hlíð
Vinna við andyrisbyggingu skólans var lokið.
Leikskólalóðin var endurbætt.
Kastala var bætt við leiksvæði og fallvarnir endurnýjaðar.
Leirvogstunga
Dúkur var endurnýjaður á talsverðu svæði.
Hulduberg
Náttúrugarður var endurgerður til að nýtast starfi ungbarna.
Brúarland
Þak Brúarlands var endurnýjað og lokið var við að fjarlægja allt rakaskemmt efni á 3. hæð.
Hlégarður
Innanhúss voru gerðar breytingar til að bæta hljóðvist.
Nauðsynlegar breytingar voru framkvæmdar til að uppfylla skilyrði fyrir 500 manna veitingaleyfi í Hlégarði.
Umhverfisverkefni og gönguleiðir
Endurnýjun gönguleiða
Stikum á stikuðum gönguleiðum var skipt úr plasti yfir í timbur í samstarfi við Mosverja og verkefninu lokið.
Girðingastigar voru lagfærðir víða og tveir nýir stígar settir upp á Vetrarmýrarhálsi við Æsustaðafjall.
Göngubrú var gerð yfir Úlfarsá í samstarfi við Reykjavíkurborg sem myndar nýja gönguleið um Úlfarsárdal.
Stígar á Skáldaleið frá Gljúfrasteini upp með Köldukvísl að Helgufossi voru lagfærðir.
Tröppur úr járni voru gerðar frá Bringum niður að Helgufossi.
Hreinsunarátak
Yngri deildir Aftureldingar tíndu rusl í bæjarlandinu og fengu styrk fyrir.
Mosverjar tóku þátt í átakinu með hreinsun í og meðfram Varmá.
Íbúar tóku virkan þátt og gróðurgámar voru settir upp í hverfum og nýttir vel.
Leikvellir og útivist
Leikvöllur við Lindarbyggð
Ný leiktæki voru sett upp og lagt nýtt yfirborð.
Leikvöllur við Klapparhlíð
Sett voru upp leiktæki með áherslu á aðgengi, bæði í vali á tækjum og yfirborðsefnum.
Krakka Mosó
Stór aparóla með upphækkuðum byrjunarpalli, ætluð eldri börnum og unglingum, var sett upp í Ævintýragarðinum.
Þrautabraut var sett upp á vatni við Stekkjarflötina, að fyrirmynd vatnsþrautabrautar í Kjarnaskógi, sem hentar bæði börnum og unglingum.
Snúningsróla, klifurgrind, minna snúningstæki og bekkur voru sett upp á leikvelli við Rituhöfða.
Flækjan
Endurbætur voru gerðar á neðsta hluta hjólabrautar og á brekkunni til að bæta öryggi.
Ný fjölskylduvæn flæðibraut var lögð við hlið Flækjunnar.
Grisjun og umhirða
Gróður við göngustíga víða um bæinn var hreinsaður og er undir reglulegu eftirliti garðyrkjudeildar.
Tré og runnar voru klippt og grisjuð.
Grassláttur og aðrar hreinsanir á opnum svæðum voru hluti af almennri starfsemi garðyrkjudeildar.
Innviðir og veitur
Grenndarstöðvar
Þrjár nýjar grenndarstöðvar voru settar upp til að bæta aðgengi íbúa að flokkun.
Sex gámastöðvar voru settar upp við Skálahlíð og í Mosfellsdal.
Lítil djúpgámastöð með þremur gámum var sett upp við Vefarastræti.
Heildarfjöldi stöðva er nú sex.
Gatnaviðhald og göngustígar
Götur voru malbikaðar, m.a. Álfatangi, Þverholt, Flugumýri og Baugshlíð ásamt minniháttar holuviðgerðum víðsvegar um bæinn.
Gangstétt var endurnýjuð í Jónsteig og hlutar gangstétta í Grundartanga, Desjamýri og Skeiðholti neðan Hlaðhamra.
Göngustígum var bætt við í Leirvogstunguhverfi og Helgafellshverfi og opnum svæðum sinnt.
Hraðaminnkandi aðgerðir voru framkvæmdar á átta stöðum í bænum.
Veitur Mosfellsbæjar
Framkvæmdir hófust við lokahús við Víðiteig sem mun miðla vatni frá nýjum vatnstanki og jafna þrýsting í veitukerfi. Verkefnið er mikilvægur áfangi í uppbyggingu vatnsveitukerfis.
Led innleiðing
Innleiðing LED-lýsingar fyrir götur og stíga er langt komin og unnið er að því að skipta út eldri búnaði og innleiða LED-lýsingu í nýjum hverfum.
Skipulag og nýframkvæmdir
Korputún
Vegagerð hófst á nýju verslunar-, þjónustu- og athafnasvæði við Korputún við Vesturlandsveg, á mörkum Mosfellsbæjar og Reykjavíkur.
Vegagerð hófst á nýju verslunar-, þjónustu- og athafnasvæði við Korputún við Vesturlandsveg, á mörkum Mosfellsbæjar og Reykjavíkur.
Úthlutun lóða
Áframhaldandi úthlutun í Úugötu var á árinu 2025.
Skrifstofur Þverholti 2 270 Mosfellsbær kt. 470269-5969 rnr. 549-26-2200
Opið virka daga mán. – fim. 8:00-16:00 fös. 8:00-13:00