Í dag var undirritaður samningur milli Mosfellsbæjar og Unicef um Réttindaskóla sem er ein af aðgerðum í aðgerðaráætlun um Barnvænt sveitarfélag. Réttindaskóli- og frístund Unicef er hugmyndafræði og hagnýtt verkfæri til þess að leggja barnasáttmálann til grundvallar í öllu starfi, skipulagningu, stefnumótun og starfsháttum. Helgafellsskóli ríður á vaðið í Mosfellsbæ og er jafnframt fyrsti samþætti leik- og grunnskólinn á landinu sem tekur þátt í verkefninu.
Skrifstofur
Þverholti 2
270 Mosfellsbær
kt. 470269-5969
rnr. 549-26-2200
Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-13:00
Hafa samband
+354 525 6700
mos@mos.is