Nýtt samkomulag felur í sér þreföldun hjúkrunarrýma í Mosfellsbæ

Samkomulag sem undirritað var í dag felur í sér þreföldun hjúkrunarrýma í Mosfellsbæ. Reist verður nýtt hjúkrunarheimili í bænum með 66 hjúkrunarrýmum en þar eru í dag 33 rými. Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, og Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri Mosfellsbæjar undirrituðu samkomulagið í sól og blíðu fyrir utan hjúkrunarheimilið Hamra við Langatanga. Áætlað er að nýja heimilið verði reist sem tengibygging við Hamra.

    Comments are closed

    Skrifstofur
    Þverholti 2
    270 Mosfellsbær
    kt. 470269-5969
    rnr. 549-26-2200

    Opið virka daga
    mán. – fim. 8:00-16:00
    fös. 8:00-13:00