Samningar voru undirritaðir í dag um samþætta heimaþjónustu við íbúa Mosfellsbæjar, aukna dagdvalarþjónustu með fleiri rýmum og stofnun heima-endurhæfingarteymis fyrir fólk í heimahúsum. Með samningunum verður rekstur allrar heimaþjónustu á hendi Eirar sem rekur hjúkrunarheimili og dagdvöl í bæjarfélaginu. Dagdvölin stækkar til muna og verður þar rými fyrir 25 einstaklinga í stað níu áður. Með því að efla og samþætta heima- og dagþjálfunarþjónustu á einni hendi er þess vænst að betur megi sníða hana að einstaklingsbundnum þörfum notenda og bregðast tímanlega við breytingum á aðstæðum þeirra og heilsufari.
Skrifstofur
Þverholti 2
270 Mosfellsbær
kt. 470269-5969
rnr. 549-26-2200
Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-13:00
Hafa samband
+354 525 6700
mos@mos.is