Frá og með þessu skólaári munu grunnskólar í Mosfellsbæ innleiða matstæki Matsferils fyrir alla árganga en hann tekur til 4. – 10. bekkjar. Matsferillinn samanstendur af nýjum stöðu- og framvinduprófum en Mosfellsbær tók þátt í þróun þessa verkefnis með Miðstöð menntunar og skólaþjónustu ásamt nokkrum öðrum sveitarfélögum. Að sögn Aldísar Stefánsdóttur, formanns fræðslunefndar Mosfellsbæjar, þá fagnar nefndin áhuga og metnaði skólastjórnenda í Mosfellsbæ sem hafa lýst yfir áformum um að prófin verði lögð fyrir alla árganga grunnskóla bæjarins og voru þessi áform rædd á fundi fræðslunefndar í vikunni.
Skrifstofur
Þverholti 2
270 Mosfellsbær
kt. 470269-5969
rnr. 549-26-2200
Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-13:00
Hafa samband
+354 525 6700
mos@mos.is